Adam Freyr...
Minningin er það sterk þegar hann kom í heiminn að mér finnst eins og það hafi verið í gær!
Alveg ótrúlegt að það séu komin 3 ár.
Afmælisveisla í dag svo að það er best að halda áfram og gera allt reddí fyrir daginn
Bið ykkur vel að lifa
Gullý
Hć hó, hér er ....
Jább.... komin aftur eftir laaanga pásu. Gat ekkert bloggað þegar ég var ekki með tölvu og svo hef ég bara, ef ég á að segja eins og er, ekki nennt að byrja aftur
HAHA
Heyriði... ég kom heim í gær frá Englandi eftir skemmtilega viku hjá ma&pa. Ég og Adam Freyr skruppum í smá heimsókn og vorum yfir páskana og 25 ára afmælið mitt. Fengum við rosa fínt veður. Fórum í dýragarð og að sjálfsögðu voru verslanir vel kannaðar.
Um hádegið á laugardeginum fórum við Sævar með lestinni inn í London (my favorite). Tékkuðum á búðum, skoðuðum okkur um, fórum á söfn og kíktum svo á djammið með honum Þóa vinnuböddí og félaga hans, honum Guðna, en þeir höfðu farið til Englands á tónleika. Tær snilld að dansa sig inn í 25 ára afmælið sitt... ég fann hvernig vöðvar og bein eldust...svo er ég ekki frá því að ég hafi fundið nokkur grá hár....
æji nei...slæmt!
Daginn eftir vaknaði ég með harðsperrur!! því eins og þið vitið að þá er mín ekki í NEINU formi
Annars var ég að pæla í að halda upp á afmælið mitt... haaaa! um næsti helgi....
Og kannski að ég fái bara Justin til að mæta og taka nokkrur lög...fyrst að Björgólfur getur fengið 50 cent þá hlýt ég að geta fengið Justin.. kommon.. ég er flottari en Björgólfur... ekki ?
og næstum jafn rík !! eða ekki...
en ég hélt í alvöru að Björgólfur hefði verið að djóka með óskalagið sem hann bað um með 50 cent um daginn þegar ég var á vegó... greinileg ekki.. hann er FAN!
Jæja - nóg komið af þessu rugli
Kveð að sinni - blogga við næsta tækifæri... og takið eftir.... NÆSTA tækifæri...
-Gullý-
Í augnablikinu...
Blogga þegar ég er komin með tölvuna aftur!
þangað til næst
Gullý
JÓLAKVEĐJA
Til hamingju með jólin
elskurnar
mínar!!
Hafið það svo rosa gott um jólin og borðið nú vel svo að ég ein þurfi ekki að fá nettan sammar yfir því hvað ég borða mikið.....
því þó svo að ég sé svona lítil... þá get ég nú ansi mikið borðað... og það vita svona flestir - þið ykkar sem þekkið mig![]()
svo er það bara ræktin eftir jólin!!![]()
Jólasveðjur..... ég meina kveðjur![]()
-Gullý-
Ohhh...
Frekar óþægilegt og ég er alltaf á tojaranum!! Og þar fer fram píningin ein...
Annars er allt gott að frétta. Á laugardaginn fórum við Adam Freyr á kókakólajólaball með frændsystkinunum og var það haldið í Ferðafélagssalnum í Mörkinni og í gær var Actavisballið á Nordica. Aron kom með okkur í gær og var þetta fyrsta jólaballið okkar saman með syninum. Rosa stuð!! Dansa kringum jólatréið eins og maður gerði í denn.... Adam Freyr fékk nammi og jólakönnu á kókballinu og DVD og CD með jólasveinunum í gær. Hann var nú frekar smeikur við sveinka kallinn, vildi sko alls ekki sjá hann á laugardaginn en var orðinn vanari í gær og tók á móti pakkanum frá sveinka
Jólin eftir 5 daga....!! og enn nokkrar gjafir eftir sem ég rumpa nú bara af í vikunni um leið og mér hættir að vera svona mál að piiiissa.
Segi þetta nóg í bili - bið ykkur aftur vel að lifa og farið varlega í jólaösinni!!
-Gullý-
Ennţá...
...að vinna! Enda nóg að gera af því að fór út til Englands.
En hvað um það!
Það var rosa gaman úti hjá mömmu, pabba og bróa. En ferðin heldur í styttri kantinum eða frá föstudegi til mánudags. Hef ferðina bara lengri næst. En þetta var voða fínt, fór bara ein og krakkalaus og það var voða notó að þurfa ekki að hlaupa á eftir honum í búðarrápi!
Náði að versla allar jólagjafir...eða svona næstum... á nokkrar eftir.
Mamma, pabbi og brói koma heim á gamlársdag og staldra í viku. Þannig að það er ekki langt þar til að ég sé þau aftur!
Og..... það eru bara 11 dagar til jóla!! sjitt hvað tíminn líður!! 5 jólin okkar Arons saman....!! Og 3 jólin hans Adams Freys.
Núna er hann farinn að fá í skóinn og það er rosa sport. Hann setur piparköku í skóinn sinn handa jólasveininum, alveg eins og mamma hans gerði þegar hún var lítil.... ehhmm... yngri...! Síðan er hann voða hissa að hún sé horfin úr skónum daginn eftir og í staðinn þá er eitthvað skemmtilegt handa honum í skónum. Í gær fékk hann gröfur og í morgun fékk hann Cars inniskó, mjög sáttur með þetta!
Jæja - sjiiitt, ætla ekki að slóra meira.... ég er hérna til að vinna!!!
Ætlað halda áfram áður en Nings kemur!! jammííí
Ég bið ykkur vel að lifa og farið í nú varlega í jólastússi og stressi og verum ekkert að stressa okkur að óþörfu... jólin koma hvort sem er.
Gullý
Frekar spennandi...
...dagur á morgun hjá mjööög svo mörgum - ÚTBORGUNARDAGUR!! ![]()
og ekki nema 8 dagar þar til að ég fer til UK!! ![]()
Ég er orðin FREKAR spennt!!
Ég er komin með uppkast af litlum lista yfir þær jólagjafir sem ég ætlað kaupa þar. Og þar sem að dvöl mín þarna ytra verður ekki svo löng þá þarf ég að vera ansi snögg að versla. Að sjálfsögðu skoðar maður líka eitthvað á sjálfan sig, en ekki hvað ![]()
Held að ma&pa ætli að fara með mig í riiisa mallið og í Brighton, bróðir minn segir að þar sé riiiisa H&M búð!!
þið stúlkur skiljið mig!!
Og svo á laugardaginn er jólagleði Actavis og þar sem að ég þjáist af valkvíða þá er ég ekki alveg komin með á hreint í hverju ég á að fara - ég á ekkert til þess að fara í...... er það ekki alltaf sama sagan ??
Samt á ég billjón og fimm kjóla og skó... en samt ekki nóg sko.
Jólagleðin verður haldin á Nordica í ár og verður þetta svona standandi boð, með aðeins öðruvísi sniði en maður er vanur. En þetta verður án efa gaman, því allar þær skemmtanir sem ég hef farið með vinnunni hafa heppnast mjög svo vel!!
en...
...nóg í bili
-Gullý-
Ég áttađi...
Ótrúlegt að það sé að koma aftur helgi... er ég búin að sofa í viku eða ??
Ég man ekki eftir að hafa farið að vinna þessa vikuna.... að vísu mætti ég seint í vinnuna í dag... svaf aðeins yfir mig og kom seint á deildarfund...!
Öfunda mömmu, pabba og Sævar - Í fyrramálið eru þau að fara til Kölnar að kíkja á jólamarkaði og hafa gaman. Sævar á svo afmæli á mánudaginn þannig að þetta er ágætis viðbót við afmælisdaginn.
Góða ferð og hafið það gott
Þarf ekki að vera öfundsjúk lengi því það er svo stutt þar til að ég fer sjálf út til þeirra
Ætla ekkert að hafa þetta langt frekar en venjulega
Bið ykkur vel að lifa
-Gullý-
Ahaaahhaa!!
Himnaguðirnir hafa verið að hlusta á mig... já nú eða lesa bloggið mitt
Og....
.....þess vegna ætla ég að skella mér til UK í desember!! nananabúbú
ójá, UK here I come!!
Ég ætlað kíkja í heimsókn til ma&pa, bara aaaalein - enginn stubbalingur með í þetta skiptið.
Vildi bara deila þessum gleðifréttum með ykkur elskurnar!!
Nóg í bili, vinnan kallar!
-Gullý-
Enn meiri...
...kuldi úti í dag en í gær!
Ætlað halda mig innandyra í dag..... hvað með þig ?
Var að uppfæra myndsíðuna mína - Kíktu núna!
Kíkið endilega á síðuna hans Adams Freys - líka nýjar myndir þar
Góða helgi - farið vel með ykkur
-Gullý-
